Hvað er
invisalign?
Invisalign er tannréttingameðferð semframkvæmd er með glærum plastskinnum, eða "ósýnileg" tannréttingameðferð eins og nafnið gefur til kynna.
Skinnurnar eru þægilegar og einfaldar í notkun, henta vel þeim sem langar í fallegra bros á stuttum tíma. Hver meðferð tekur yfirleitt 4 til 6 mánuði og er skipt um hverja skinnu á 7-10 daga fresti.
Hvernig fer meðferðin fram?
- Fyrsti tími er alltaf stutt skoðun og viðtal. Teknar eru ljósmyndir og þrívíddarskann af tönnum og meðferðaráætlun útbúin í framhaldi af því.
- Í lok tímans er bókaður annar tími að viku liðinni þar sem farið er yfir niðurstöður og sjá má hvort invisalign meðferð henti viðkomandi.
- Sum tilfelli geta reynst of flókin fyrir Invisalign kerfið sem við notum, í þeim tilfellum getum við vísað á tannréttingasérfræðinga sem við vinnum náið með
Meðferðarferlið
Hver skinna er notuð í 7-10 daga í senn, að lágmarki 22 klukkustundir á sólahring. Einstaklingur mætir í eftirlitstíma á nokkurra vikna fresti þar sem gengið er úr skugga um að allt sé á réttri leið. Í lok meðferðar eru notuð stoðtæki svo tennurnar færist ekki aftur að lokinni meðferð.
Hafa samband