Þjónusta

Almenn skoðun

Almenn skoðun

Með reglulegri tannhreinsun og eftirliti hjá tannlækni auk góðrar munnhirðu er hægt að halda tannskemmdum og tannholdsbólgum í lágmarki. Í almennri skoðun eru teknar röntgenmyndir og hreinsaður tannsteinn, ásamt því að fara yfir ástand tanna. 
Fyllingar

Fyllingar

Á stofunni notum við einungis hvít fyllingarefni.
Stærð fyllingar og fjöldi flata ræðst af umfangi skemmdar. 

Rótfyllingar

Rótfyllingar

Tennur þarf að rótfylla ef sýking hefur orðið í taugaholi eða tönn hefur orðið fyrir áverka sem skaðað hefur taugina. Rótfylling er oftast um 2-3 heimsóknir og veltur kostnaður meðferðarinnar á hversu margir rótargangar eru í viðkomandi tönn. Á stofunni sjáum við um allar almennar rótfyllingar og erum við í samstarfi við rótfyllingarsérfræðinga sem við vísum á í flóknari tilfellum. 
Úrdrættir

Úrdrættir

Fjarlægja þarf tennur þegar þær eru það illa farnar að ekki er hægt að bjarga þeim. Stundum þarf að fjarlægja endajaxla ef ekki er nægilegt pláss í kjálkabeininu.
Kjálkabreiðmynd

Kjálkabreiðmynd

Kjálkabreiðmynd gefur góða yfirsýn yfir stöðu tanna í kjálkabeininu ásamt ástandi róta og beins. Kjálkabreiðmyndir eru teknar í upphafi og við lok tannréttingarmeðferða, við fyrstu skoðun. Einnig eru kjálkabreiðmyndir teknar með reglulegu millibili í almennum skoðunum, fyrir úrdrætti á endajöxlum og tannplanta aðgerðir. 
 
Útlitstannlækningar

Útlitstannlækningar

Á stofunni bjóðum við upp á ýmsar meðferðir sem bæta útlit tanna og hjálpa til við að fegra brosið. Meðal annars tannhvíttun, postulíns krónur/skeljar, Composit/plast skeljar og tannréttingar með Invisalign. 

Krónu og brúarsmíði

Krónu og brúarsmíði

Í sumum tilfellum er nauðsynlegt að setja krónur á tennur. Tennur með stórum fyllingum og rótfylltar tennur eru gjarnan brothættari og þurfa þá oft krónur. Króna er postulínshetta sem sett er yfir tönnina. Tönnin er skorin til, mát tekið af tönninni með þrívíddarskanna og tannsmiður smíðar svo postulínskrónu sem tannlæknir límir fasta í næstu heimsókn.
Tannplantar

Tannplantar

Tannplantar koma í staðin fyrir tennur sem hafa tapast, einnig eru þeir notaðir til að festa lausa gervigóma. Á stofunni notum við einungis Straumann tannplanta.
Invisalign tannréttingarmeðferð 

Invisalign tannréttingarmeðferð 

Við bjóðum upp á invisalign tannréttingar, þar sem notaðar eru "ósýnilegar" plastskinnur til að rétta tannskekkjur. Hentar einstaklingum sem ekki eru tilbúnir til að vera með sýnileg tæki.

JHG Tannlækningar

Staðsetning

Sóltún 26
5. hæð
105 Reykjavík
Hafa samband

Fylgstu með